7 þúsund vínþyrstir á klukkustund

Háannatími vínsölunnar á Íslandi er í þessari viku sem nú er að líða inn í Verslunarmannahelgina en áltlað er að nærri 130 þúsund viðskiptavinir leggi leið sína í ríkið svokallaða þessa síðustu daga fyrir mestu ferðahelgi ársins.

Í fyrra seldust 724 þúsund lítrar af áfengi í vikunni fyrir téða helgi, en til samanburðar seljast að meðaltali um 470 þúsund lítrar í hverri viku í vínbúðum hins opinbera.

Á síðasta ári komu 42 þúsund viðskiptavinir á föstudeginum fyrir Verslunramnnahelgi í búðirnar og þar af langflestir á milli klukkan 16:00 og 18:00, eða allt að 7 þúsund viðskiptavinir á klukkustund.

Sigrún ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri ÁTVR segir í samtali við Morgunblaðið að búðirnar séu fullmannaðar í svona tilvikum, en á stundum þurfi engu að síður að hleypa inn í hollum.