Niðurstöður nýrrar launakönnunar endurskoðunarfyrirtækisins PriceWaterhoseCoopers sýna að meðaltal heildarlauna á Íslandi var rífar 570 þúsund krónur á síðasta ári og nam hækkunin hálfu þriðja prósenti frá árinu þar á undan. Algengustu mánaðarlaunin á Íslandi eru á bilinu 400 til 600 þúsund krónur, en góður þriðjungur launþega í landinu er með laun á því bili. 12% landsmanna eru með 300 þúsund eða lægri mánaðarlaun og samtals tæplega 30% með laun undir 400 þúsund krónum á mánuði. Þeir sem þiggja laun undir 200 þúsundum króna mælast varla í könnuninni.
Vel ríflega þriðjungur landsmanna er með mánaðarlaun yfir 600 þúsundum króna, þar af 15% með hærri laun en 800 þúsund krónur og 7% launþega á Íslandi eru með eina milljón eða meira í laun í hverjum mánuði.
Sérstaka athygli vekur við lestur helstu niðurstaðana launakönnunarinnar að föst laun hækka meira en heildarlaun á milli tveggja síðustu ára, föstu launin um hálft sjötta prósent, en heildarlaunin um rétt ríf þrjú prósent. Forkólfar PwC telja skýringuna vera þá í samtali við Markaðinn í dag að dregið hafi úr aukagreiðslum.