Hér eru nokkrar athyglisverðar vísindalegar staðreyndir um bjór og jákvæðar heilsufarslegar ástæður fyrir því að drekka þennan vinsælasta drykk heims. Þó skal athuga að þessar vísindalegu staðreyndir taka til hóflegrar bjórdrykkju.
1. Dregur úr líkum á að fá ýmsa sjúkdóma
Andoxunarefnið Xantohumol er að finna í humlum. Efnið dregur úr vexti krabbameinsvaldandi ensíma og verndar sömuleiðis heilann gegn aldurstengdum sjúkdómum á við Alzheimer og Parkinson.
2. Styrkir húð og bein
Bjór inniheldur sílikon, sem styrkir bæði húð og bein.
3. Örvar heilastarfsemi kvenna
Þessi punktur á að vísu við um allt áfengi. Samkvæmt rannsókn sem var birt í New England Journal of Medicine voru konur sem drukku einn áfengan drykk á dag með betur starfandi heila þegar þær urðu eldri en þær sem ekki drukku áfengi.
4. Inniheldur mikið af vítamínum og trefjum
Bjór inniheldur mikið af vítamínum, þar á meðal B-vítamínum og þá sérstaklega fólínsýru. Bjór er sömuleiðis trefjaríkur, en tvö bjórglös uppfylla 10 til 30 prósent af ráðlögðum dagskammti af trefjum.
5. Lengir lífið
Rannsókn sem vísindamenn við Virginia Tech framkvæmdu um áhrif bjórdrykkju á fólk leiddi í ljós að fólk sem drakk ekki bjór var 19 prósent líklegra til að láta lífið samanborið við fólk sem drakk hóflegt magn bjórs, á þeim tíma sem rannsóknin stóð yfir.
6. Styrkir hjartað
Niðurstöður rúmlega 20 rannsókna benda til þess að bjór styrki hjartað, sé hans neytt í hóflegu magni. Ein rannsóknanna sýndi meðal annars fram á að hófleg bjórdrykkja dró úr líkunum á að fólk glímdi við kransæðasjúkdóma.
7. Bætir gæði sæðis
Vísindamenn við Massachusetts General Hospital í Boston rannsökuðu tengsl bjór- og kaffidrykkju og gæði sæðis. Komust þeir að þeirri niðurstöðu að karlar sem drukku því sem nemur að minnsta kosti þremur bjórflöskum á dag væru meira en þrisvar sinnum líklegri til að verða feður við tæknifrjóvgun, samanborið við þá karla sem drukku ekki bjór.