7 einkenni eineltis í skólum

Nú þegar skólarnir eru að byrja, er gott að renna yfir þau einkenni sem eru einkenni eineltis í skóla. Oftast er talað um gerendur og þolendur, en afleiðingar eineltis geta verið bæði alvarlegar og langvarandi. Mikilvægt er að foreldrar viti hvað einelti er og séu meðvitaðir um einkenni þess.

Við hvetjum foreldra barna til að deila þessari grein á Facebook, til að auka á meðvitund um einelti strax í upphafi skólaárs og koma í veg fyrir að slíkt eigi sér stað.

Á vefsíðunni Verndum börnin segir:

Einelti hefur ýmsar birtingarmyndir, sem allar fela í sér einhvers konar niðurlægingu fyrir þann sem fyrir því verður. Birtingarmyndir eineltis geta verið eftirfarandi:

\"\"
1. Niðurlægjandi athugasemdir, t.d hvað varðar útlit, klæðnað eða athafnir, uppnefni, fliss eða augngotur.
• 

2. Útskúfun og afskiptaleysi. Barn má ekki vera með í leik eða er ekki boðið með á atburði, s.s. í afmæli. Það er ekki látið vita þegar eitthvað stendur til.

3. Ekki er tekið tillit til skoðana og tillagna einstaklings, þær eru virtar að vettugi.


4. Eigum er stolið, þær vanvirtar eða eyðilagðar.
• 

5. Einstaklingur er þvingaður til að gera eitthvað sem brýtur niður sjálfsvirðingu hans og stríðir gegn réttlætiskennd.
• 

6. Líkamlegt ofbeldi.


\"\"7. Sögusagnir og lygi er borið út um einstakling eða fjölskyldu hans