Ekki gat hún orðið neyðarlegri dagsetningin þegar nokkrir fyrrverandi forkólfar Kaupþings sáluga gengu út af Kvíabryggju í dag eftir tæplega eins árs inniveru í skjólinu af Kirkjufelli vestur á nesi.
Dómur þeirra var margra ára fangelsi fyrir brot í bissnesstarfi, en afplánunin reynist öllu styttri.
Nú eru örlög þessara manna að klæðast ökklabandi innan um almenning og skila sér tímanlega inn á Vernd á kvöldin, en þar er griðastaður fanga sem eru á leið út í lífið eftir temmilega tukthúsvist.
Þetta gerist á sama degi og forsætisráðherra þjóðarinnar hrökklast endanlega frá völdum sínum í Stjórnarráðinu fyrir að hafa ofboðið þjóð sinni í aflandsviðskiptum.
Hvað heita svona dagar?
Fimmtudagurinn fúni.
Já, mjög líklega er það réttnefni, en að þetta skuli gerast á einum og sama deginum er algerlega í takti við annað í íslensku samfélagi nú um stundir.