681 missti prófið vegna ölvunar 2014









Samtals misstu 1276 Íslendingar bílprófið á síðasta ári, þar af 681 vegna ölvunaraksturs. Þessar tölur sýna að rífan meirihluta ökuleyfissviptinga má rekja til vímuefna. Þá vekur það einnig sérstaka athygli við rýni þessara talna af af þeim 681 sem misstu prófið 2014 sakir vímuefnanotkunar voru aðeins 146 undir áhrifum áfengis. Alls 535 þessara ökuleyfissviptinga má rekja til aksturs undir áhrifum annarra vímuefna en áfengis og ein svipting vegna aksturs undir áhrifum örvandi- eða deyfilyfja.

Þetta kemur fram í svari frá Ríkislögreglustjóra við fyrirspurn frá upplýsingaveitunni spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar, en þar kemur jafnframt fram að ökuleyfissviptingar vegna of hraðs aksturs voru 119 talsins árið 2014.