6,8 milljarðar í aðgerðir í loftslagasmálum

6,8 milljörðum verður varið til sérstakra aðgerða í loftslagasmálum hér á landi á næstu fimm árum.

Þetta kemur fram í nýrri aðgerðaráætlun í loftslagsmálum var kynnt þann 10.september síðastliðinn en hvorki meira né minna en sjö ráðherrar kynntu hana á blaðamannafundi. Þessi áætlun samanstendur af 34 aðgerðum.

Markmiðið er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að aukinni kolefnisbindingu – CO2 er heitið yfir gróðurhúsalofttegundir og afleiðingar losunar þeirra er bráðnun jökla, yfirborð sjávar hækkar, öfgar aukast í veðurfari,  vistkerfi raskast og hafi súrnar.

Tvær megináherslur er þarna:

1. Orkuskipti í samgöngum og aðallega rafvæðingu í vegasamgöngum en líka skipahafna

2. Átak í kolefnisbindingu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra segir í þæattinum 21 í kvöld, áætlunina snúa að því sem stjórnvöld beri ábyrgð á en þar fyrir utan er losun sem tengist flugsamgöngum og stóriðju og heyrir undir viðskiptakerfi EES þar sem markaður er með losunarkvóta. Guðmundur Ingi segir innbyggða hvata fyrir þessi fyrirtæki að minnka losun þar sem kaup á losunarkvóta sé dýr og því allt að vinna að finna nýjar lausnir til að losa minna af gróðurhúsalofttegundum.

Stjórnvöld einbeita sér að vegasamgöngum, losun frá skipaflotanum og landbúnaði. Orkuskiptin er stór hluti áætlunarinnar og á að búa til fleiri hvata til að skipta út olíunotkun fyrir rafmagns eða metan, m.a. að stuðla betur að lægra verði umhverfisvænni bíla.

Gríðarlega margt þar að gera til að geta staðið við markmið Parísarsamningsins  til 2030 en þar fyrir utan setur ríkisstjórnin sér aukalega markmið um kolefnishlutleysi árið 2040.

Parísarsamkomulagið hafa 197 ríki ritað undir. Það sem stendur upp á íslensk stjórnvöld er að minnka losun um 35 til 40 prósent.

Þeir 6,8 milljarðar sem fylgja í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar og fara í áætlunina skiptast svona:

4 milljarðar: Kolefnisbindin á næstu fimm árum

1,5 milljarðar: Uppbygging innviða fyrir rafbíla, rafvæðingu hafna og annarra aðgerða vegna orkuskipta.

500 milljónir: Nýsköpun í vegna loftslagsmála / Stofnun Loftslagssjóðs

800 milljónir: Ýmsar aðgerðir s.s .rannsóknir á súrnun sjávar, bætt kolefnisbókhald, alþjóðlegt starf og fræðsla.