65 þúsund krónum rænt af wilhelm: gerist í hverjum mánuði – „þetta er eru eftirlaun sem við höfum safnað, deila, deila, deila“

„Nú liggur það fyrir kristaltært að ríkið rænir af mér 65 þúsund krónur á mánuði af eftirlaunum mínum, eða sjö hundruð og áttatíuþúsund á ári eftir skatt.“

Þetta segir Wilhelm Wessman sem starfað hefur sem hótelstjóri víða um heim og á Íslandi. Á löngum starfsferli tók hann þátt í að koma lífeyrissjóðakerfinu á þegar það var stofnað og borgaði í lífeyrissjóði í rúmlega 40 ár. Wilhelm telur gróflega brotið á eftirlaunaþegum í dag með þeim skerðingum sem verða á bótum almannatrygginga fái tekjur annars staðar frá svo sem úr lífeyrissjóðum. Hann hefur undanfarið látið til sín taka í réttindabaráttu eldri borgara. Wilhelm Wessman heldur áfram:

„Þetta byggi ég á endurgreiðslu tryggingastofnunar ríkisins, sem mér barst í dag, en hún er tilkomin vegna dóms Landsréttar í máli nr.466/2018 sem Flokkur fólksins höfðaði á hendur ríkisins vegna útreikninga á eftirlaunum frá TR fyrir janúar og febrúar 2017

Ekki má rugla þessu máli saman við mál Gráa hersins sem er að fara í gang, en það snýst um að skerðingar á greiðslu TR vegna greiðslu frá lífeyrissjóð sé óheimil. Lífeyrissjóðsgreiðslur eru ekkert annað en síðtekin laun, eða eftirlaun. Launþegar greiða bæði sinn hlut og svokallaðan hlut atvinnurekanda í lífeyrissjóð mánaðarlega.“

Þá segir Wilhelm einnig:

„Ég neita að kalla eftirlaunagreiðslur frá lífeyrissjóð og TR ellilífeyrir, við erum ekki ÞEGAR við erum að fá greidd áunnin réttindi. Við ættu að krefjast þess af lífeyrissjóðum okkar að þeir hætti að kalli mánaðarlegar greiðslur til okkar ellilífeyrir. Þetta eru eftirlaun sem við höfum safnað með því að leggja hluta af launum okkar í sjóð og taka þau út á ævikvöldi. Þá bætir hann við að lokum:

„Deila, deila, deila.“