6,5 milljarða gróði - samt brot

\"Ny Islandsk tråler tatt for ulovlig hysefiske i Norges økonomiske sone.\"

Svo segir í færslu norska sjóhersins á Facebook-síðu hersins um fiskveiðibrot skipverja á togaranum Þerney í norskri landhelgi. Grandi gerir út  skipið og vekur athygli að sjávarútvegsrisinn stundi veiðiþjófnað í erlendri lögsögu með ólöglegum veiðum á ýsu þar sem gróði Granda í fyrra var 6,5 milljarðar króna.
Stundin greindi fyrst frá málinu.
Þar segir einnig af því að norski sjóherinn hafi haft afskipti af Kleifaberginu RE-070 sem er í eigu Brims og sektað útgerðina einig vegna ólöglegra ýsuveiða.
Samkvæmt stöðufærslu norska hersins komst upp um lögbrot íslensku útgerðanna við reglubundið eftirlit.

Fram kemur í athugasemdum við fréttina á facebook að sektirnar sem nema nokkrum milljónum króna þyki lágar. Alfred Aastrøm skrifar að sektin sé sennilega mun lægri en ábati íslensku útgerðanna af veiðiþjófnaðinum. \"Boten ble vedtatt umiddelbart. Noe sier meg at verdien av de ulovelige fangsten var MYE større...\"
Hringbraut hefur sent bæði Granda og Brimi fyrirspurn vegna málsins.