64 fórust í eldsvoða í síberíu

Að minnsta kosti 64 eru látnir, þar á meðal mörg börn, eftir stórbruna í verlunarmiðstöð í síberísku kolanámuborginni Kemerovo í gær.

Eldurinn kom upp í þeim hluta miðstöðvarinnar þar sem eru kvikmyndahús og keilusalur. Börnin sem létust voru mörg hver í kvikmyndahúsinu. Þakið í tveimur bíósölum hrundi, en eldurinn hafði breiðst mjög hratt út.

Um 660 slökkviliðsmenn tóku í 17 klukkutíma þátt í að ráða niðurlögum eldsins.