63% heimila ná að leggja fyrir

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, er einn gesta Jóns G. í kvöld. Tíminn líður hratt á stafrænni öld og JÁ hefur vaxið hratt síðustu árin eftir að fyrirtækið keypti Gallup og Leggja. Þau Jón G. ræða upplýsingatæknina, stóraukna vefverslun, uppbyggingu Já, væntingar stjórnenda og fjárfesta og loks ræða þau árlega og athyglisverða könnun Gallup um fjárhag heimila en þetta árið segjast 63% heimila ná að leggja fyrir og 27% segjast með naumindum geta látið enda ná saman. 6% segjast ganga á sparifé sitt og 4% heimila safna skuldum. Spennandi þáttur kl. 20:30 í kvöld.