Alls voru 61 mál sem tengjast starfsemi svokallaðra kampavínsklúbba skráð í málaskrá lögreglu á árabilinu 2011 til 2015. Öll málin áttu sér stað á höfuðborgarsvæðinu og voru fimm þeirra í rannsókn á síðasta ári.
Þetta kemur fram í svari Ólafar Nordal innnaríkisráðherra við fyrirspurn Þorsteins Sæmundssonar, þingmanns Framsóknarflokksins um starfsemi ætlaðra vændisklúbba á Íslandi. Ráðuneytið óskaði eftir umsögn embættis ríkislögreglustjóra en þar eru kampavínsklúbbar skilgreindir sem staðir sem bjóða upp á súludans og/eða félagsskap fáklæddra starfsmanna gegn kaupum á kampavíni.
Frá árinu 2011 hafa fimmtán mál sætt ákærumeðferð, að því er fram kemur í svari ráðuneytisins. Þrjátíu mál hafa á sama tíma verið látin niðu falla. Þá hafa þrír þurft að greiða sekt vegna slíkrar starfsemi, árin 2012 og 2013.
Alls hafa komið upp fimmtán tilfelli sem tengjast brotum á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtistaði. Tólf tilvik vegna auðgunarbrota, þ.e fjárdráttar, þjófnaðar eða fjársvika og jafnmörg tilvik er varða kynferðisbrot. Kynferðisbrotin eru skilgreind þannig að stuðlað hafi verið að slíkum brotum með ginningum, hvatningum eða milligöngu að aðrir hafi samræði eða önnur kynferðismök gegn greiðslu eða tekjur hafðar af vændi annarra, svo og kaup á vændi.