600 styðja frumvarp gegn umskurði

Um 600 hjúkr­un­ar­fræðing­ar og ljós­mæður hér á landi hafa skrifað und­ir til stuðnings frum­varpi Silju Dagg­ar Gunn­ars­dótt­ur, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, um að umsk­urður barna al­mennt verði bannaður með lög­um að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Íris Björg Berg­mann Þor­valds­dótt­ir hjúkr­un­ar­fræðing­ur og Katrín Sif Sig­ur­geirs­dótt­ir, hjúkr­un­ar­fræðing­ur og ljós­móðir, settu af stað und­ir­skriftal­ista á fimmtu­dags­kvöld. Þegar blaðamaður mbl.is náði tali af Írisi höfðu rétt um 600 hjúkr­un­ar­fræðing­ar og ljós­mæður skrifað und­ir.

Sjálf hef­ur Íris haft mik­inn áhuga á þessu mál­efni frá því árið 2008 þegar hún, sem ný­út­skrifaður hjúkr­un­ar­fræðing­ur, er spurð af for­eldr­um ný­fædds drengs hvar þau gætu fengið son sinn umskor­inn. Hún fór í fram­halds­nám í byrj­un 2016 sem hún kláraði á síðasta ári og skrifaði loka­verk­efni sitt um umsk­urð drengja.

Íris býr í Dan­mörku og hef­ur hún kom­ist í kynni við mál­efnið af fyrstu hendi. Að sögn starfar hún á svæði þar sem tals­vert er af fólki sem kem­ur frá menn­ing­ar­heim­um þar sem umsk­urður drengja er al­geng­ur. „Ég var oft í þess­ari aðstöðu að þetta var ekki bannað en ég vissi hversu skaðlegt þetta gæti verið og hvaða áhætta væri fólg­in í þessu,“ seg­ir hún.

„Auðvitað er eng­inn að halda því fram að það sé 100% áhætta fólg­in í þessu, en það er of mik­il áhætta miðað við að þetta er al­gjör­lega óþarft, sem sagt þegar þetta er gert án lækn­is­fræðilegr­ar ástæðu,“ seg­ir Íris. Einnig hafa rúm­lega 400 ís­lensk­ir lækn­ar lýst yfir ánægju með frum­varpið.