600 milljóna fjáraukning til barnaverndar

Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar til fjögurra ára var samþykkt á Alþingi í gær. Gert er ráð fyrir 600 milljón króna fjáraukningu til þess að byggja upp og þróa úrræði og þjónustu í málaflokknum. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu.

Framkvæmdaáætluninni er ætlað að efla grunnvinnslu barnaverndarmála á fyrstu stigum, stuðla að snemmtækri íhlutun, auka samvinnu ríkis og sveitarfélaga og fjölga gagnreyndum úrræðum.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, mælti fyrir áætluninni þann 29. apríl síðastliðinn. Hann segir:

„Framkvæmdaáætlunin er liður í heildarendurskoðun í málefnum barna og mikilvægt skref í átt að því að skapa heildarsýn og samfellu í þeirri þjónustu og í þeim úrræðum sem standa börnum og foreldrum til boða. Áætlunin er metnaðarfull og yfirgripsmikil og unnin í góðu samráði við helstu hagsmunaaðila sem er lykilatriði í þeirri vinnu sem nú stendur yfir í tengslum við málefni barna.“

Í tilkynningunni er greint frá því að félagsmálaráðuneytið, Barnaverndarstofa og barnaverndarnefndir sveitarfélaga muni vinna samkvæmt áætluninni með meginmarkmið barnaverndarlaga að leiðarljósi, sem er að tryggja viðunandi uppeldisskilyrði barna og að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega og árangursríka aðstoð.