60% styðja borgarlínuna

Rífur helm­ing­ur þátt­tak­enda í nýjustu skoðanakönnun Maskínu  lýsti sig frem­ur eða mjög hlynnta Borg­ar­lín­unni, eða 52,5%. 24,8% lýstu sig frem­ur eða mjög and­víg Borg­ar­lín­unni og 22,7% voru í meðallagi hlynnt eða and­víg Borg­ar­línu.

en hún er sam­starfs­verk­efni allra sveit­ar­fé­lag­anna á höfuðborg­ar­svæðinu um betri al­menn­ings­sam­göng­ur á helstu sam­gönguás­um svæðis­ins.

Skoðana­könn­un­in sýnir að ekki er einhugur um Borg­ar­lín­una, en hún er sam­starfs­verk­efni allra sveit­ar­fé­lag­anna á höfuðborg­ar­svæðinu um betri al­menn­ings­sam­göng­ur á helstu sam­gönguás­um svæðis­ins.

Stuðningur við þessa samgönguleið er afar misjafn milli flokka; þeir sem segj­ast myndu kjósa Flokk fólks­ins, Miðflokk­inn og Sjálf­stæðis­flokk­inn eru nei­kvæðast­ir í garð Borg­ar­línu, en á bil­inu 46,1-49,9% þeirra segj­ast and­víg­ir Borg­ar­línu.

Meiri­hluti þeirra sem segj­ast ætla að kjósa aðra flokka eru já­kvæðir gagn­vart Borg­ar­línu. Yfir 80% þeirra sem myndu kjósa Sam­fylk­ing­una og Pírata segj­ast hlynnt­ir Borg­ar­lín­unni.

Tæp 34% karla lýsa sig and­víga, en ein­ung­is 15,3% kvenna. Þá virðist ungt fólk mun hlynnt­ara Borg­ar­lín­unni en þeir sem eldri eru, en yfir 60% þátt­tak­enda á aldr­in­um 18-39 ára lýstu sig hlynnta Borg­ar­lín­unni. Borg­ar­lín­an nýt­ur minnst stuðnings á meðal fólks á aldr­in­um 50-59 ára, en 41,5% þátt­tak­enda á þeim aldri lýstu sig hlynnta.

Reyk­vík­ing­ar eru hlynnt­ari Borg­ar­lín­unni en íbú­ar í ná­granna­sveit­ar­fé­lög­um borg­ar­inn­ar. 59,9% Reyk­vík­inga segj­ast hlynnt Borg­ar­línu en 49,3% íbúa ná­granna­sveit­ar­fé­lag­anna eru á hennar bandi.