Laun 85 ára gamals manns sem fær eftirlaun úr lífeyrissjóði og frá Tryggingastofnun hækkuðu um 10.548 krónur um mánaðamótin. Hringbraut hefur fengið þessar tölur staðfestar.
Misjafnt er hve tæplega 9% prósenta hækkun lífeyrisþega um áramótin skilar sér eftir stofni. Á sama tíma hækkuðu laun dómara með ákvörðun Kjararáðs um 300.000-500.000 krónur, frá 37,8% til 48,1%. Heildarlaun forseta Hæstaréttar fóru úr tæplega 1,3 milljónum á mánuði í tæplega 1,9 milljónir króna.
Eiginkona 85 ára gamla mannsins, Unnur Þorsteinsdóttir, íbúi á Akureyri, segir snautlegt að Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kalli það svo að ríkisstjórnin hafi gert vel við gamla fólkið en vilji ekki ræða það frekar. Á Unnur þar m.a. við þegar Bjarni sagðist ekki í skapi til að ræða þetta mál í Kryddsíld á Stöð 2.
„Þessir menn höfðu áður talað eins og að aldrei hafi annað eins góðverk verið gert í fjármálum aldraðra og öryrkja,“ segir Unnur í samtali við Hringbraut.
Ef krónutala forseta Hæstaréttar, það er launahækkunin um áramót, er borin saman við kjarabót 85 ára gamla mannsins slagar nálægt því að munurinn sé 60-faldur. Annar fær rúmar 10.000 krónur aukalega. Hinn 600.000 króna kjarahækkun.
Fyrir jól hafnaði ríkisstjórnin kröfu aldraðra og öyrkja um að lífeyrir hækkaði afturvirkt en sjálfir fengu þingmenn afturvirka launahækkun.