Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar, var gestur Jóns G. í gærkvöldi og ræddu þau afar merka norska könnun sem gerð var nýlega og leiddi í ljós að forstjórar 19 norskra fyrirtækja telja að 60 ára og eldri séu úrvals vinnukraftur og með meiri kraft, tryggð, reynslu og viðveru á vinnustöðum en þeir sem yngri eru. Samkvæmt þessu eru 60 plús mjög vannýttur vinnukraftur en forstjórar á miðjum aldri, milli 40 til 50 ára, heykjast oftar en ekki á að ráða fólk á þessum aldri til starfa.
Þetta er mjög fróðlegt og skemmtilegt viðtal við Ingrid. Norsku stjórnendurnir í könnunni voru spurðir um álit á fólki yfir sextugu og hrósuðu þeir því mikið.
„Það er sjaldan frá vinnu, er áreiðanlegt, helgar sig starfinu, sýnir vinnuveitandum tryggð og ekki að leita sér að annarri vinnu. Á sama tíma kom fram að þeir eldri ættu stundum erfitt með breytingar og væru stundum þreyttir á að gera það sama,“ segir Ingrid.
Það kom ennfremur í ljós í könnuninni að eldri starfsmenn væru með meiri orku en þeir yngri. Nokkrar skýringar voru gefnar á þessum óhagstæða orkusamanburði yngra fólks. Ein var sú að þeir orkulausu í 60 plús væru einfaldlega hættir á vinnumarkaðnum og eftir stæðu þess vegna einvörðungu þeir orkumeiri. Það tekur sömuleiðis mikla orku að vera með of marga bolta á lofti.
„Unga fólkið er að gera svo margt í einu, er með marga bolta á lofti,“ segir Ingrid. „Það er að eignast börn, koma sér upp heimili með öllu því fjármálavafstri sem því fylgir, greiða niður námslán, reyna að ná starfsframa, sinna börnunum eftir vinnu og skutlast með þau í íþróttir, tólistarnám og tómstundir á erilsömum tíma síðdegis þegar allir eru orðnir þreyttir. Jafnvel líka að sinna öldruðum foreldrum. Þegar þannig stendur á er rætt um samlokukynslóð.“
Þetta er mjög fróðlegt viðtal við Ingrid og hægt að horfa á það í endursýningum á Hringbraut í dag og á tímaflakki. Einnig er þátturinn kominn inn á heimasíðu Hringbrautar og hægt að horfa á hann þar hvenær sem er.
Hér er tengill á þáttinn en viðtalið við Ingrid byrjar á 19 mínútu.