Sigríður Björk Guðjónssdóttir lögreglustjóri í Reykjavík var gestur Björns Þorlákssonar í Kvikunni á Hringbraut á mánudagskvöld, en þar ræeddi hún m.a. breytt glæpalandslag, netglæpi og hvernig vísbendingar eru samkvæmt nýrri skýrslu að mafíustarfsemi sé að færast að hluta frá höfuðborgarsvæðinu og út á land.
Þáttinn er hægt að skoða hér á hringbraut.is, en heimilisofbeldi og kynferðisbrot voru einnig til umfjöllunar, en þjóðin er slegin yfir meintum hrottalegum nauðgunum í Hlíðunum síðustu vikur.
Í þættinum var víða komið við en Sigríður Björk svarar t.d. þeirri spurningu í þættinum hvort afglæpavæða eigi marijúana á Íslandi.
Fram kemur í þættinum að mikil þreyta hafi einkennt störf lögreglu undanfarið, undirmönnun er vandamál sem og skortur á fjárveitingum. Á sama tíma og 6-10 glæpaklíkur hafa með skipulögðum hætti skipt milli sín hluta af glæpalandslaginu innanlands hefur verið þjarmað að björgum lögreglu til að takast á við afbrot. Nokkur starfsmannavelta einkennir ástandið undanfarið, til að mynda hafa margir lögreglumenn sótt um störf flugþjóna undanfarið. Víðtæk óánægja hefur verið með kjaramál en lögreglustjóri segist vonast til að lögreglumenn samþykki nýja kjarasamninga og boðar nýtt átak gegn netglæpum.
Kvikan er frumsýnd á Hringbraut öll mánudagskvöld.