59 milljarðar í húsnæðismál

Dag­ur B. Eggerts­son, borg­ar­stjóri kynnir nú drög að húsnæðisáætlun á borgarstjórnarfundi. Margvísleg uppbyggingu húsnæðis í borginni til næstu ára eru á yfirliti sem er kynnt á fundinum - og áður á blaðamannafundi í Reykjavík.

Reykjavíkurborg legg­ur 59 millj­arða til fjár­fest­inga, hús­næðisstuðnings og sér­stakra bú­setu­úr­ræða næstu fimm árin.

Þá kemur meðal annars fram að byggingasvæði fyrir meira en 2500 íbúðir eru á framkvæmdastigi. Um 4000  íbúðir séu í form­legu skipu­lags­ferli, auk þess sem svæði fyr­ir tæp­lega 10 þúsund íbúðir eru í þróun.

Einnig verður áhersla á sam­starf við bygg­inga­fé­lög um að reisa íbúðir án hagnaðarsjón­ar­miða. Um 3700 staðfest áform eru til staðar um leigu eða búsetréttaríbúðir fyr­ir stúd­enta, eldri borg­ara og fjöl­skyld­ur með lægri og milli­tekj­ur. Af því verði þúsund íbúðir byggðar í samstarfi við verkalýðshreyfinguna.

Áhersla verður á félagslega blönduð hverfi, segir í annars viðamiklu yfirliti um uppbygingu húsnæðis sem nú er til kynningar í Ráðhúsinu.

Í húsnæðisáætluninni eru töluleg markmið um þann fjölda íbúða sem þurfa að fara í uppbyggingu til lengri og skemmri tíma. Þá eru skilgreind helstu byggingarsvæði í Reykjavík og hvernig uppbyggingu íbúðahúsnæðis sem Reykjavíkurborg beitir sér sérstaklega fyrir verður háttað í samvinnu við verkalýðshreyfinguna, húsnæðissamvinnufélög, samtök eldri borgara, stúdenta og einkaaðila, auk eigin leigufélags borgarinnar, Félagsbústaða