Árið 2014 voru 5.831 feður í fæðingarorlofi, í samanburði við 6.824 mæður. Þetta kemur fram í svari Fæðingarorlofssjóðs við fyrirspurn lesanda, en þar segir jafnframt að feður taki almennt fæðingarorlof síðar en mæður.
Í yfirliti sem Leó Örn Þorleifsson forstöðumaður Fæðingarorlofssjóðs tók saman vegna fyrirspurnar um málið hjá upplýsingaveitunni spyr.is má sjá að mesta breytingin á fæðingarorlofi feðra hefur orðið upp úr aldamótum. Þannig var meðaltalsfjöldi feðra í orlofi aðeins 39 dagar árið 2001, til samanburðar við 73 daga árið 2014. Mæður taka þó enn mun fleiri fæðingarorlofsdaga en feður, en meðaltalsfjöldi mæðra í orlofi árið 2014 voru 179 dagar.
Spyr.is er samstarfsaðili sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar, en þar gefst almenningi að spyrja stofnanir og fyrirtæki alls kyns spurninga sem honum lekur fotvitni á að vita svörin við, en mörg áhugaverðustu svörin eru svo tekin fyrir í sjónvarpsþættinum Ég bara spyr í umsjá Rakelar Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Spyr á Hringbraut á þriðjudagskvöldum í haust og vetur, en þátturinn er frumsýndur klukkan 20:30 fyrrgreint kvöld.