5,7 milljarðar til frumherja

 

Fréttablaðið í dag segir frá því í forsíðufrétt að Orkuveita Reykjavíkur hafi borgað Frumherja 5,7 milljarða króna í mælaleigu að núvirði.

Greiðslurnar námu 360-420 milljónum króna á ári og stóðu yfir í fimmtán ár. Veitur ohf keyptu mælana aftur af Frumherja í nýliðinni viku fyrir nær þrefalda þá upphæð, eða 1,6 miljarða króna. Verðið sem OR fékk á sínum tíma fyrir mælana var 590 milljónir króna þegar selt var árið 2001.

Í skriflegu svari OR við fyrirspurn Fréttablaðsins segir að ekki sé vitað hvers vegna fyrri stjórnendur ákváðu þetta fyrirkomulag á sínum tíma og að ekki hafi verið lagt mat á „hagkvæmni þeirrar ákvörðunar“.