Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, sagði í Þjóbraut, sem var á dagskrá útvarps Hringbrautar í morgun, að hér starfi að jafnaðui 4.500 kennarar en alls eru hér um tíu þúsund menntaðir kennarar. Sem segir að innan við helmingur þeirra sem hafa menntast til kennara starfar við kennslu.
Ólafur segir alvarlega stöðu í grunnskólunum ekki verða lagað nema að til komi meiri peningar. Skólarnir þarfnist þess.
Ráði sveitarfélögin ekki við rekstur skólanna verði þau einfaldlega að skila þeim aftur til ríkisins.
Kennarar hafa verið boðaðir til ríkissáttasemjara á mánudag. Sem kunnugt er eru kennarar og sveitarfélögin ekki með gildan kjarasamning.
Nokkuð hefur verið um uppsagnir meðal kennarar sem gefast upp undan því ástandi sem er í skólunum. Ólafur Loftsson stöðuna mjög alvarlega.