Meirihluti þeirra sem hefur tekið þátt í óformlegri könnun á hringbraut.is um afstöðuna til opinberrar birtingar skattskila einstaklinga vill að tölurnar verði sýnilegar oftar en einu sinni ári.
Ef marka má könnunina vilja 55% þátttakendanna í henni að skattskil einstaklinga verði aðgengileg almenningi einu sinni í mánuði, 35% telja nægilegt að þau liggi frammi einu sinni a ári og tíundi hver þeirra gaf upp afstöðu sína í þessum efnum reyndist vera á móti birtingu upplýsinganna.
Í þessu sambandi má geta þess að í Noregi hafa skattskil einstaklinga verið aðgengileg einu sinni í mánuði um nokkurt skeið - og þykir það hafa gefið góða raun að mati þarlendra skattafyrirvalda og aukið aðhald og eftirlit með meintum skattsvikurum.
Víst er að sitt sýnist hverjum í þessum efnum hér á landi, enda hafa talsmenn úr báðum fylkingum nokkuð til síns máls. Sigríður Andersen þingkona Sjálfstæðisflokksins hefur barist hart gegn birtingu skattaskila einstaklinga, eins og raunar margir aðrir samflokksmenn hennar, en hún hefur bent á að um persónulegar upplýsingar sé að ræða, á stundum viðkvæmar, sem eigi að liggja í þagnargildi eins og annað sem varði einkahagi fólks.
Benedikt Jóhannesson útgefandi Frjálsrar verslunar, sem árlega gefur út tekjublað sitt með upplýsingar um tekjur á fjórða þúsund Íslendingar hefur sagt við Hringbraut af þessu tilefni að alltaf muni verða uppi stjórnmálamenn sem vilji leyna almenning upplýsingum; leyndarhyggja í þessum efnum sé hins vegar til þess eins að skapa tortryggni í samfélaginu, upplýst umræða kalli eftir því að fólk geti borið saman laun sín við aðra í sambærilegum störfum og það hafi í för með sér aðhald og eftirlit.
Undir þetta tekur Gylfi Arnbjörnsson forstei ASÍ í samtali við Hringbraut, en hann telur upplýsingarnar af hinu góða og geri skattvsikurum erfiðara um vik. Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri SA efast hins vegar um gagnsemi þessara upplýsinga og segir við Hringbraut að þær séu einkum settar fram af fjölmiðlum til að svala forvitni; ef menn vilji bera saman tekjuhópa sé harla auðvelt að bera sig eftir þeim í gögnum Hagstofunnar.