55 fm íbúð leigð á 220 þúsund

55 fermetra íbúð í Marklandi í Fossvoginum er nú auglýst til leigu hjá Fasteignasölunni Lind á 220 þúsund krónur á mánuði sem er með því mesta sem fregnast hefur á leigumarkaðnum á undanliðnum mánuðum.

Íbúðin er sögð vera tveggja herbergja, en ekki kemur fram í auglýsingunni hvort aðgangur sé að salerni og eldhúsi, sem má þó ætla, miðað við verðlagninguna.

Fasteigna- og leiguverð hefur hækkað gífurlega á síðustu árum. Fasteignaverð, eitt og sér, hefur sjöfaldast það sem af er þessari öld; fermetrinn í hefðbundnu íbúðarhúsnæði kostaði að meðaltali um 100 þúsund krónur árið 2000, en kostar nú 700 þúsund krónur - og raunar hátt í eina milljón króna í vinsælustu hverfum borgarinnar, svo sem miðbænum.

Leiguverð hefur svo fylgt þessari verðþróun eins og dæmin sýna.