55 flóttamenn til landsins

Samkvæmt tillögu Flótta­manna­nefndar eru 55 sýr­lensk­ir flótta­menn á leið til landsins. Þeir munu koma hingað til lands úr flótta­manna­búðum í Líb­anon.

Hafa fjölmiðlar í dag greint frá stöðu þeirra. Hefur komið fram að í hópn­um séu verk­fræðing­ur, mál­ari, þýðandi, pípu­lagn­ing­armaður, raf­virki, verka­menn, barþjónn og húsmæður. 50% flóttamannanna fara til Akureyrar en fjórðungur til Hafn­ar­fjarðar og fjórðungur fer í Kópavog.

Rætt var um tíma að taka á móti a.m.k. 70 flóttamönnum.

Um tíma þegar Kæra Eygló átakið stóð yfir á facebook höfðu landsmenn boðist til að bjarga um 10.000 manns.

Ekki liggur fyrir hvort þessir 55 munu allir þiggja boðið.