Aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar Þjóðareign.is munu afhenda forseta Íslands undirskriftir um kvótamálin næstkomandi mánudag. Áskorunin hefur verið undirrituð af 53.571 Íslendingum á kosningaaldri.
Í tilkynningu frá Þjóðareign.is segir: „Við undirrituð skorum á forseta Íslands að vísa í þjóðaratkvæðagreiðslu hverjum þeim lögum sem Alþingi samþykkir þar sem fiskveiðiauðlindum er ráðstafað til lengri tíma en eins árs á meðan ekkert ákvæði um þjóðareign á auðlindum hefur verið sett í stjórnarskrá og þjóðinni ekki verið tryggt fullt gjald fyrir afnot þeirra.“
Kveikjan að undirskriftarsöfnuninni var að Alþingi hugðist úthluta heimildum til veiða á makríl til lengri tíma en eins árs án þess að nokkuð ákvæði væri í stjórnarskrá sem tryggi eign þjóðarinnar á auðlindinni.
Í tilkynningunni er tekið fram að texti áskorunarinnar taki til allra fiskistofna þrátt fyrir að frumvarp Alþingis hafi einvörðungu snúið að makrílveiðum. Áskorunin til forseta Íslands standi því enn þrátt fyrir að umrætt frumvarp hafi verið dregið til baka á Alþingi. Markmiðið með áskoruninni sé að setja ákvæði um þjóðareign á auðlindum í stjórnarskrá og tryggja þjóðinni fullt gjald fyrir afnot þeirra.