Það vantar 530 hjúkrunarrými hér á landi að sögn Kristjáns Þórs Júlíussonar, heilbrigðisráðherra en talið er að það kosti 15 milljarða króna til að koma til móts við þörfina á þessum þjónustuúrræðum.
Í þættinum Okkar fólk í gærkvöld, sem sjá má hér á hringbraut.is ræddi Helgi Pétursson við Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra um öldrunarþjónustu, dvalar- og hjúkrunarheimili og helstu áhersluatriði stjórnvalda á næstu misserum, en í fyrri þáttum hefur Helgi farið hringinn í kringum landið til að skoða aðbúnað eldra fólks í samfélaginu og mun á næstu vikum kynna sér þau mál á höfuðborgarsvæðinu.
Í þætti gærkvöldsins var staldrað við og Kristjáni Þór boðið til myndstofu, en sem fyrr segir kom fram í máli hans að það vantar um 530 hjúkrunarrými til þess að mæta brýnni þörf í málaflokknum, en hvert slíkt úrræði kostar um 30 milljónir króna.
Talið barst einnig að þeim þáttum sem samfélagið allt getur sinnt til þess að hlúa betur að eldra fólki, nefnilega lýðheilsu stærstu kynslóðar Íslandssögunnar.
Okkar fólk er frumsýnt öl þriðjudagskvöld.