53. stormurinn frá áramótum

Veðurfræðingar skafa ekkert utan af því hvað fram undan er í veðurkerfunum yfir landinu; spáð er "miklum hvelli sem gengur nokkuð hratt yfir landið," eins og það er orðað í skeytum þeirra. Rétt er að taka það strax fram að ekkert ferðaveður verður víða um vestanvert landið, svo sem á Kjalarnesi, í Hvalfirði, undir Hafnarfjalli og norðantil á Snæfellsnesi þar sem stormsveipirnir slá upp undir 55 m/s sem er fáheyrð veðurhæð í byggð. Ofviðrið nær allt austur til Eyjafjalla og má búast við kafaldsbyl á flestum fjallvegum frá Hellisheiði til Holtavörðuheiði.
Þetta er 53. stormviðvörun Veðurstofunnar það sem af er ári og 24. dagurinn sem veðurhamurinn fer yfir 40 m/s. Að sögn veðurfræðinga hafa lægðir sjaldan farið jafn þétt yfir landið og nú hefur gerst svo mánuðum skiptir.