Að minnsta kosti 5.000 flóttamenn hafa komið til Danmerkur undanfarna viku. Sú tala er varlega áætluð en lögreglan hefur ekki upplýsingar um nákvæman fjölda flóttamannanna. Flestir fara svo beint frá Danmörku og til Svíþjóðar.
Í samantekt á fréttavefnum mbl.is í morgun segir að flóttafólkið komi til Danmerkur akandi, með flugi eða lestum, flest frá Þýskalandi, en vcefyrinn hefur þessar upplýsingar frá Danska ríkisútvarpinu þar sem vitnað er í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. Þar kemur fram að lögreglan hafi leyft flóttamönnunum að koma til landsins án þess að skrá þá og taka af þeim fingraför.
Í frétt DR segir að dæmi séu um að flóttafólkið hafi ekki sýnt samtarfsvilja og viljað láta skrá sig við komuna til Danmerkur. Því hafi lögreglan leyft þeim að halda för sinni áfram til Svíþjóðar þar sem flestir reyna að fá hæli. Þetta hefur verið gert þrátt fyrir að samkvæmt reglum Evrópusambandsins eigi að meðhöndla umsóknir flóttamanna um hæli í því landi sem þeir koma fyrst til. Það hefur heldur ekki verið gert í mörgum öðrum Evrópulöndum, s.s. Ungverjalandi.
Danska lögreglan segist ekki hafa nákvæmar tölur um fjölda flóttamanna en segir að álagið sé mikið og að erfitt sé að ná utan um hópinn og ástandið sem hefur skapast: \"Við erum í óvenjulegum aðstæðum þar sem danska lögreglan getur ekki sinnt starfi sínu við landamæri Danmerkur og Þýskalands,“ hefur DR eftir lögreglustjóranum Jens Henrik Hojbjerg og mbl.is vitnar til í morgun.