Svínabændur um allt land hafa orðið fyrir stórtjóni af völdum verkfalls dýralækna innan Bandalags háskólamanna, en þeir mæta aftur til starfa í dag eftir rösklega tveggja mánaða vinnustöðvun.
Geir Gunnar Geirsson framkvæmdastjóri Stjörnugríss á Kjalarnesi metur það svo í samtali við Morgunblaðið í dag að 500 tonn af frosnum birgðum af svínakjöti hafi safnast upp á meðan á verkfallinu hafi staðið - og nú þegar slátrun grísa fari á fullt megi líta svo á að birgðirnar séu tapað fé. \"Það er sala sem er töpuð,\" segir hann við blaðið og heldur áfram: \"Það er enda ekki hægt að selja sama matinn tvisvar. Fólk borðaði eitthvað annað á þessu tímabili.\"
Hann segir að verðlækkun myndi ekki skipta neinu máli til að freista þess að auka söluna: \"Það er það mikið magn í pípunum,\" segir hann og bendir á að búin séu full af svínum sem ætti fyrir löngu að vera búið að slátra.