500 milljóna króna þakíbúð í boði

Þor­vald­ur Giss­ur­ar­son, for­stjóri ÞG verks, seg­ir í Morgunblaðinu í dag að á Hafn­ar­torgi í miðborginni verði nýr gæðaflokk­ur í íbúðum á Íslandi. Fer­metra­verðið verði hæst vel á aðra millj­ón króna.

Sam­kvæmt því mun 440 fer­metra þak­í­búð sem snýr að Hörpu kosta 400-500 millj­ón­ir. Alls 69 íbúðir verða á Hafn­ar­torgi og þar af níu þak­í­búðir. Þor­vald­ur seg­ir arki­tekta og inn­an­hús­hönnuði hafa unnið að hönn­un þak­í­búðanna.

Niðurstaðan sé íbúðir í gæðaflokki sem stand­ist sam­an­b­urð við lúxus­í­búðir í er­lend­um stór­borg­um. Það verði sér­stak­lega mikið lagt í stóru þak­í­búðina á Geirs­götu. Þar verði fjór­ar íbúðir sam­einaðar í eina, að því er fram kem­ur í  um­fjöll­un um fram­kvæmd­ir þess­ar í Morg­un­blaðinu í dag.