500 aðgerðum hefur verið frestað vegna yfirstandandi verkfalla hjúkrunarfræðinga, geislafræðinga, lífeindafræðinga og ljósmæðra á Landspítalanum á síðustu vikum og sjúkrarúmum af sömu sökum hefur verið fækkað um 120.
Starfsmenn Landspítalans sem eru innan Bandalags háskólamanna hafa verið í verkfalli í nálega tvo mánuði, eða frá 7. apríl og enda þótt deilendur hittist við samningsborðið í dag liggur enn ekkert samningstilboð fyrir. Hjúkrunarfræðingar hafa verið í verkfalli frá því seint í síðustu viku, alls um 1100 manns en daglega eru um 500 hjúkrunarfræðingar að störfum í þeim bráðatilvikum sem undanþágur eru fyrir. Hjúkrunarfræðingar hitta viðsemjendur sína í dag en eiga ekki von á því að nokkur hreyfing komist á þær viðræður á næstu dögum.
Í samantekt yfirstjórnar Landspítalans um áhrif verkfallsins kemur fram að 3200 dag- og göngudeildarkomum hefur verið fækkað, 60% myndgreinarannsókna hefur verið frestað, 50% blóðrannsókna hefur verið frestað og þá hefur 21 geislafræðingur þegar sagt upp störfum sínum vegna álags og kjara á spítalanum.
Ólafur G. Skúlason formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sagt að verði ekki samið um raunverulegar kjarabætur til handa félagsmönnum muni bresta á flótti úr hjúkrunarfræðingastétt á landinu. Staðan sé slæm; um 900 hjúkrunarfræðingar séu að fara á eftirlaun á allra næstu árum en á sama tíma muni aðeins 500 nýir hjúkrunarfræðingar útskrifast. Þá hafi 450 hjúkrunarfræðingar hér á landi sótt um atvinnuleyfi í Noregi frá 2011 - og verði kjör þeirra ekki lagfærð til samræmis við það sem þekkist í samanburðarlöndum haldi þessi landflótti áfram af enn meiri þunga en áður.