Tugir Íslendinga eru á biðlista eftir nýra, en umfjöllun um mikilvægi líffæragjafar hefur farið mikinn í samfélaginu að undanförnu og er útlit fyrir að lögum um líffæragjöf verði breytt á yfirstandandi þingi.
Líffæragjafar og líffæraþegar voru gestir þáttarins Fólk með Sirrý á Hringbraut í gærkvöld, en mikill fjöldi Íslendinga hefur ýmist þegið líffæri eða gefið þá á undanförnum áratugum. Myndin sem fylgir þessari frétt sýnir einmitt hóp hjóna þar sem annar gaf nýra sitt og hinn þáði - og fékk þar með annað líf, eins og það er gjarnan orðað á meðal líffæraþega.
Gestir Sirrýjar í þættinum, sem hægt er að sjá hér á hringbraut.is hvetja allir sem einn landsmenn til að kynna sér líffæragjafir og fara inn á síðu Landlæknis og undirrita þar að þau samþykki að vera líffæragjafar.
Hvernig getur maður gert upp við sig hvort maður sé tilbúinn til að skrá sig sem líffæragjafi? Jú, viðmælendur Sirrýjar í þættinum segja að ef fólk geti hugsað sér að fá ígrætt líffæri úr öðrum til að lifa af, þá ætti það að geta hugsað sér að gefa líffæri eftir sinn dag og gefa þar með annað líf.
Fólk með Sirrý er frumsýnt öll miðvikudagskvöld klukkan 20:00.