5 dagar þar til samfélagið lamast

Samtök atvinnulífsins vinna nú að því að breyta vinnutímatillögu sinni sem verið hefur sgteinn í götu frekari samningaviðræðna deilenda á vinnumarkaði á síðustu dögum - og í reynd komið þeim í þrot.


Helst er nú litið til þess að vinnutímatillaga atvinurekenda verði unnin og útfærð á lengri tíma og því í rauninni lögð til hliðar við gerð núyverandi kjarasmaninga en félög innan Alþýðusambands Íslands hafa mörg hver þvertekið fyrir að halda viðræðum áfram ef atvinnurekendur halda stíft í tillögu sína.


Hver dagur er nú dýr á vinnumarkaði en í næstu viku, fari svo að samningar náist ekki, hefjast í næstu viku umfangsmeiri verkfallsaðgerðir á Íslandi en þekkst hafa um áratugaskeið með þátttöku tugþúsunda landsmanna innan raða Starfsgreinasambandsins, Flóabandalagsins, VR, LÍV, Félags hjúkrunarfræðinga, rútubílstjóra, flugafgreiðslufólks, starfsfólks skipafélaga, matvörubúða og olíufélaga, en þessi upptalning sýnir hversu lamandi áhrif aðgerðirnar hefðu á samfélagið og þá sem það vilja heimsækja.