Beijing hinn 4.júní 1989

Torg eða öllu heldur Hlið hins himneska friðar er stórt torg nálægt miðborgarhluta Beijing höfuðborgar alþýðulýðveldsins Kína. Torgið hefur verið vettvangur margra atburða í sögu Kína.

Utan alþýðulýðveldsins Kína er torgið þekkt vegna mótmæla sem voru á torginu í maí og júní árið 1989. Lagt var til atlögu við mótmælendur á torginu hinn 3. júní 1989 og næsta dag hinn 4. var torgið rutt með hervaldi.

Hversu mikið mannfall varð á torginu og annars staðar er óljóst og umdeilt. Þessi beiting hervalds af hálfu kínverskra stjórnvalda var gagnrýnd en umræða um þennan atburð í alþýðulýðveldinu Kína er lítil. Í dag eru 28 ár liðin frá þessum atburði.   

rtá