Alls eru 49 látnir og 20 til viðbótar alvarlega særðir eftir hryðjuverkaárás á tvær moskur í Christchurch á Nýja Sjálandi. Þetta staðfesti Mike Bush, ríkislögreglustjóri Nýja Sjálands, á blaðamannafundi. Pressan.DV.is greinir frá.
Fjórir voru handteknir og verður krafist gæsluvarðhalds yfir einum karlmanni á þrítugsaldri, Brenton Tarrant, vegna gruns um að hann hafi skipulagt árásina og myrt fólkið. Bush segir ljóst að um vel skipulagða árás hafi verið að ræða.
Einn karlmaður sem var handtekinn er ekki tengdur málinu að sögn Bush, en var handtekinn þar sem hann var nálægt vettvangi og með vopn. Verið er að rannsaka hvort hin tvö, karl og kona, tengist árásunum en þau voru sömuleiðis með vopn.
Sýnt frá árásinni á netinu
Fréttablaðið greinir frá því að Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja Sjálands, hafi í ávarpi sínu til þjóðarinnar sagt vera um einn mesta sorgardag í sögu þjóðarinnar að ræða. Hún greindi frá því að sýnt hafi verið frá árásinni á netinu. Tarrant hafi þar birt 73 blaðsíðna stefnuyfirlýsingu sína og sagst vera að hefna fyrir innrás útlendinga í landið. Árásin hafi verið í undirbúningi í tvö ár.
Á meðal þess sem lögregla hefur fundið eru bílar sem búið var að festa sprengjur við. Auk þess var notast við skotvopn í árásinni.
Ardern sagði að ekki væri hægt að kalla þetta neitt annað en hryðjuverkaárás og að enginn þeirra sem voru handteknir hafi verið á lista yfir mögulega hryðjuverkamenn.