Keppt í gamanmyndagerð í fyrsta sinn á íslandi: húmor og gleði munu ráða ríkjum og hvert lið fær ókeypis gistingu fyrir þrjá

Á Gamanmyndahátíð Flateyrar í ár verður keppt í gamanmyndagerð. Þar munu þriggja manna lið fá 48 klukkustundir til að fullgera gamanmynd frá hugmynd að frumsýningu. 48 stunda kvikmyndakeppnir hafa verið haldnar víða um heim, en nú verður ein slík haldin í fyrsta sinn á Íslandi, á Gamanmyndahátíð Flateyrar, þar sem húmor og gleði munu ráða ríkjum. Hátíðin, sem nú er haldin í fjórða skipti, mun fara fram frá 18. til 22. september.

Fyrirkomulagið á 48 stunda keppninni er eftirfarandi:

Liðin skulu skipuð þremur þátttakendum, hvert lið fær ókeypis gistingu fyrir þrjá á Flateyri og þrjú hátíðararmbönd á Gamanmyndahátíðina. Liðum er þó heimilt að styðjast við fleiri aðstoðarmenn og leikara.

Á miðvikudaginn 18. september verður Arnór Pálmi Arnarson, leiðbeinandi keppninnar, með örnámskeið í gamanmyndagerð. Að því loknu verður þema ársins kynnt og klukkan byrjar að telja niður.

\"\"

Arnór Pálmi Arnarson leikstjóri og handritshöfundur

Fullkláruðum gamanmyndum þarf að skila inn föstudagskvöldið 20. september. Arnór Pálmi verður liðunum innan handar bæði varðandi handritsgerð, tökur og klippingu á meðan á ferlinu stendur.

Liðin þurfa sjálf að útvega sér tökubúnað en mögulegt verður að komast í klippitölvur Lýðskóla Flateyrar.

Myndirnar verða að því loknu sýndar á Gamanmyndahátíðinni þar sem fyndnasta 48 stunda gamanmyndin verður verðlaunuð.

Til að sækja um þátttöku þarf að fylla út umsóknarform og rennur umsóknarfrestur út 5. september næstkomandi.

Vilja stuðla að aukinni grósku í gamanmyndagerð

Hringbraut lék forvitni á að vita hvernig hugmyndin að 48 stunda keppninni hafi komið til og hafði samband við Ársæl Níelsson, einn af skipuleggjendum Gamanmyndahátíðar Flateyrar.

„Nú er þetta fjórða hátíðin og við höfum alltaf á hverju ári leitast við að stækka hana og gera hana meira aðlaðandi,“ segir Ársæll. „Markmið okkar með því að halda svona sérhæfða keppni er að stuðla að aukinni grósku í gamanmyndagerð. Flestar stuttmyndir eða myndir á Íslandi yfir höfuð eru yfirleitt dramatískar og við vorum búin að fara í gegnum rjómann af því sem var í boði þannig að okkur fannst nauðsynlegt að halda vinnusmiðju og keppni þar sem fólk væri hreinlega að búa til myndir sérstaklega fyrir okkur.“

\"\"

Ársæll ásamt Þórhalli Þórhallssyni, Loga Sigursveinssyni verðlaunahafa og Eyþóri Jóvinssyni

„Við höfum verið að fara í gegnum íslenskar gamanmyndir í fullri lengd og þær er nánast hægt að telja á annarri hendi. Það er eins og leikstjórar leggi áherslu á eitthvað dramatískt, þessi týpíska íslenska mynd, hún er nú sjaldnast gamanmynd,“ bætir hann við.

Ársæll segir að með keppninni vilji aðstandendur hátíðarinnar stuðla að auknu framboði gamanmynda. „Þarna vorum við að leita að nýjum tækifærum, stækka hátíðina, stækka pottinn af fólki sem kemur til okkar. Þetta er náttúrulega um langan veg að fara þannig að þetta gerir hátíðina ennþá meira aðlaðandi fyrir langt ferðalag.“

„Svo vildum við líka fara í samstarf við hinn nýstofnaða lýðskóla, sem byrjaði sitt fyrsta starfsár fyrir ári síðan. Þetta er unnið í samstarfi við þau. Þau skaffa okkur aðstöðu og klippibúnað og hjálpa okkur við kynninguna á þessu. Kvikmyndagerðarfólkið þarf helst samt að koma með eigin tökubúnað og vera með einhvern grunn í kvikmyndagerð. Við erum ekki að kenna kvikmyndagerð, þetta er bara meistaraklassi í gamanmyndagerð,“ bætir hann við.

Ársæll segir að skráning sé nú í fullum gangi og hvetur hann áhugasama til að sækja um sem fyrst, þar sem takmörkuð pláss séu í boði. „Þetta á að höfða til allra menntaskólafiktara og jafnvel upp í reyndari og útskrifaða kvikmyndagerðarmenn sem hafa kannski gleymt sér í dramanu og vilja fríska aðeins upp á gamanmynda „genre-ið“.“

„Vonandi stuðlar þetta að því að við náum að ala upp nýja kynslóð eða að auka vægi gamanmyndagerðar hjá þessari kynslóð sem er að koma upp.“

Endanleg dagskrá tilkynnt eftir helgi

Tilkynnt verður um endanlega dagskrá hátíðarinnar eftir helgi en skemmtidagskrá hennar er þó staðfest. „Það er Tvíhöfði, ball með Á móti sól, kaffihlaðborð og laxaveisla. Við erum í fyrsta skipti að selja hátíðarband. Það er frítt á allar kvikmyndasýningarnar en hátíðarbandið veitir aðgang að sératburðum. Þá nær fólk að spara 25 prósent af heildarverði þessara atburða með því að kaupa bandið í forsölu.“

\"\"

Aðspurður um hvort dagskráin í ár verði að með svipuðu sniði og fyrri ár segir Ársæll: „Við erum með ákveðna punkta sem við höldum okkur við. Við munum opna með kvöldskemmtun á fimmtudaginn þar sem við byrjum á því að fá okkur að borða, en Jómfrúin kemur vestur og verður með pop-up veitingastað á Vagninum. Svo er Tvíhöfði með kvöldskemmtun um kvöldið.“

„Á miðvikudeginum byrja liðin að vinna sínar myndir og hafa til þess 48 klukkustundir og eiga að skila fyrir klukkan átta á föstudegi. Við byrjum á að sýna okkar uppáhaldsmyndir frá fyrri árum. Svo sýnum við myndirnar úr þessari keppni, þessu námskeiði, og það verður kosið um bestu myndina. Svo ætlum við að heiðra Stellu í orlofi. Þetta er fjórða árið í röð sem við erum með heiðurssýningu. Það er kominn tími til að drottningin fái löngu verðskuldaðan heiður,“ bætir hann við.

Til viðbótar við 48 stunda keppnina er búið að bæta við aukalegu barnaprógrammi. „Við fórum líka í samstarf við Tónlistarskólann á Ísafirði, þannig að við bryddum núna upp á þeirri nýjung að vera með kvikmyndatónleika. Þá verðum við með svarthvíta gamanmynd þar sem tónlistarskólinn mun sjá um að spila undir.“

\"\"

„Svo bætum við enn frekar við barnaprógrammið á sunnudeginum. Við vorum í fyrra með barnasýningu þar sem Villi [Naglbítur] mætti og skemmti krökkunum og við sýndum eina Sveppa mynd við gríðarlega góðar undirtektir. Til viðbótar erum við núna að bæta við leiksmiðju fyrir börn í samstarfi við Leiklistarskóla Borgarleikhússins,“ segir Ársæll og bætir því við að hátíðin taki í fyrsta sinn í ár við erlendum myndum.

Ljósmyndir af hátíðinni í fyrra voru teknar af Arjan Wilmsen og Tom Reinders