Ríkissjóður hefur selt Reykjavíkurborg landsvæðið í Skerjafirði sem var undir þriðju flugbrautinni 06/24. Brautinni hefur verið lokað.
Landið eru rúmir 108 þúsund fermetrar en kaupsamningurinn byggir á samkomulagi um skipulag á umræddu landi ríkisins. Samkomulagið var gert á milli ríkis og Reykjavíkurborgar þann 1. mars 2013. Í því er kveðið á um kaupverð og sölu eftir lokun brautarinnar sem hefur af sumum verið nefnd „neyðarbrautin“ þar sem vélar í sjúkraflugi hafa nýtt hana til lendinga.
Kaupverðið sem Reykjavíkurborg hefur þegar greitt fyrir landið samkvæmt samningi er 440 milljónir króna. Viðbótargreiðslur munu síðar koma til þegar lóðir verða seldar.
Í tilkynningu frá Ráðhúsinu í dag segir að svæðið sé að miklu leyti hugsað til að mæta þörf fyrir uppbyggingu húsnæðismarkaðar. Tillögur að verklagi eiga að liggja fyrir í byrjun 10. september næstkomandi.