Áætlað er að hlutur viðskiptavinanna hafi hækkað um 410 milljónir króna. Við kaupin á hlutnum í október varð hópurinn að skuldbinda sig til að halda hlutnum í þrjá mánuði eftir skráningu. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Útboðið var harðlega gagnrýnt í október og sagði Arion banki í kjölfar umræðunnar að salan hefði verið misráðin og að verklagi bankans yrði breytt.
Arion banki seldi öðrum fjárfestingahópi, sem Orri Hauksson forstjóri Símans setti saman, um fimm prósenta hlut í fyrirtækinu á genginu 2,5. hann má ekki selja fyrr en 1. janúar á næsta ári, svo sem fram kemur í blaðinu.
Rétt er að taka fram í þessu sambandi að forvígismenn Arion banka hafa viðurkennt að mistök hafi verið gerð að hálfu bankans í téðu söluferli og hafa af því tilefni endurskoðað verkþætti sína á þessu sviði.