4000 tonn af plasti urðuð á ári

Reykjavíkurborg hefur afráðið að bjóða íbúum upp á sérstaka ruslatunnu fyrir plastúrgang og taka með þeim hætti næsta skref í bættri umhverfismenningu borgarbúa.

Borgin hefur verið eftirbátur margra annarra stórra sveitarfélaga þegar kemur að flokkun úrgangs, en tekur nú á sig rögg í þessum efnum. Í tilkynningu frá borginni segir að kannanir sýni að borgarbúar séu duglegir að flokka til endurvinnslu og vilja flokka enn meira. \"Reykjavíkurborg vill koma til móts við þessar óskir og mun heimilum fljótlega standa til boða sérstök tunna undir plastsöfnun. Hún verður græn á litinn og losuð á 28 daga fresti,\" segir í tilkynningunni.

Bent er á að 20% efnis í blönduðum úrgangi er plast um þessar mundir og því var 4000 tonnum af plasti urðað í Álfsnesi á síðasta ári. Kannanir sýna að borgarbúar vilja meiri þjónustu í úrgangsmálum við heimilin og þar eru konur áhugasamari en karlar því 59% kvenna vilja bæta við flokkunartunnu en 45% karla. 80% borgarbúa búa í fjölbýli og geta sameinast um tunnur undir plast. 

Opin fundur verður á vegum borgarinnar á Kjarvalsstöðum í kvöld klukkan 20:00 um framtíð úrgangsmála, þar sem Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri umhverfis- og úrgangsmála ræða framtíðarsýnina í þessum efnum, en einnig mun Rakel Garðarsdóttir, stofnandi Vakandi, samtaka sem vilja auka vitundarvakningu um sóun matvæla, fjalla um hvað neytandinn getur gert sjálfur til að draga úr sóun.