4000 íbúðir leigðar til ferðamanna

Rúmlega 4.000 íbúðir á Íslandi eru í útleigu til ferðamanna að mati Samtaka atvinnulífsins. Þetta setur þrýsting á fasteignaverð. Verð á fermetra hefur hækkað um meira en hundrað þúsund krónur í fjölbýli síðustu fimm ár í eldri hverfum Reykjavíkurborgar.
 

Frá þessu er greint á fréttavef RÚV í gærkvöld, en þar segir jafnframt að fermetraverð á íbúðum í fjölbýli í miðborginni hafi hækkað um meira en 120 þúsund krónur frá árinu 2010. Sambærileg hækkun hafi einnig orðið í Vesturbænum. Fermetraverð í fjölbýlihúsum í Löndunum í Fossvogi hafi til samanburðar hækkað um 90 til 100 þúsund krónur og í Rimahverfi í Grafarvogi hafi fermetraverð í fjölbýlishúsum hækkað um rúmar 70 þúsund krónur.

Það er Þjóðskrá Íslands sem hefur veg og vanda af því að halda saman þróun á fasteignaverði á landinu öllu: \"Þegar við bárum saman tölurnar frá 2010 og til ársins í ár þá sjáum við að þetta eru hverfi sem eru miðsvæðis sem eru að hækka mest. þau hverfi hafa verið að hækka meira en önnur hverfi,“ segir Jón Þór Finnsson, verkfræðingur hjá Þjóðskrá við RÚV.

Fasteignaverð í allt að tvö þúsund metra fjarlægð frá Lækjartorgi hefur hækkað um rúm 55 prósent. Í tvö til fjögur þúsund metra fjarlægð er hækkunin rúm 50 prósent. Hækkun hefur orðið í öllum hverfum höfuðborgarsvæðisins og er víðast meiri en 30%. Sérfræðingar hafa sagt að þróun fasteignaverðs sé í takt við önnur umsvif í hagkerfinu. Aukin straumur ferðamanna til Íslands geti átt sinn þátt í þróuninni með tilkomu Airbnb og fleiri sambærilegra leiða til útleigu.

\"Við höfum áætlað að þetta séu í kringum 4000-4100 íbúðir hér á landinu öllu. þannig að þetta er verulegur fjöldi fólks sem er að leigja slíkar íbúður og þetta setur þrýsting á leiguverð og smitar út í hækkun kaupverðs, eða fasteignaverðs,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins í frétt RÚV um fasteignamarkaðinn í gærkvöld.