400 heimili þurftu mataraðstoð í einu

Fátækt er dulið mein í samfélaginu sem allt of lítið er fjallað um.

Þetta kom fram í fréttaskýringaþættinum Kvikunni á Hringbraut í gærkvöld.

Gestir þáttarinar voru Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Halldóra Mogensen, varaþingmaður Pírata. Píratar lögðu í síðustu viku fram uppfærða þingsályktunartillögu um breytingu á bótakerfi sem kölluð er borgaralaun. Með borgaralaunum er ætlast til að allir fái viðunandi greiðslur, laun en ekki bætur.

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, hefur kallað bótakerfið eins og það er í dag kafkaískt helvíti. Í þættinum í gærkvöld greindi Brynjar Níelsson og Halldóru Mogensen á um þá hvata sem þyrfti til að halda fólki virku á atvinnumarkaði.

Fram kom að hugmyndafræði bóta eða borgaralauna mætti ræða út frá því hvort fólk almennt reyndi að víkja sér undan atvinnu eða hvort það væri sammannlegt með öllu óbrotnu fólki að hver og einn gerði sitt besta til að lifa mannsæmandi lífi. Sláandi tölur frá Reykjanesbæ voru einnig ræddar en um 400 heimili þáðu mataraðstoð frá Fjölskylduhjálp Suðurnesja í síðustu viku sem er mesta ásókn sögunnar.

Talsmaður Fjölskylduhjálparinnar segir ljóst að margir kvíði jólunum en umfjöllun um fátækt drukkkni í fréttum af uppgandi og góðæri sem þó nái alls ekki til allra.

Kvikan á Hringbraut verður endursýnd í vikunni.