40 milljónir vegna súdan

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið að fela Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) að ráðstafa 40 milljónum íslenskra króna, annars vegar til flóttafólks frá Suður-Súdan sem flúið hefur yfir landamærin til Úganda, og hins vegar til vannærðra íbúa Borno og Yobe héraðanna í norðaustur Nígeríu þar sem hryðjuverkasamtökin Boko Haram hafa tvístrað samfélögum.

Utanríkisráðuneytið birtir tilkynningu um þetta í dag.

Ekkert lát er á stríðsátökunum í Suður-Súdan sem hófust árið 2013 og hafa leitt af sér flóðbylgju flóttamanna til nágrannaríkja, einkum Úganda. Yfir landamærin hafa farið meira en 700 þúsund flóttamenn frá upphafi átakanna.

Í norðurhluta Nígeríu hefur ríkt vargöld um langt skeið vegna vígasveita Boko Haram sem hafa hrakið á þriðju milljón manna á flótta. WFP telur að 4,5 milljónir manna hafi þörf fyrir matvælaaðstoð, þar af 2 milljónir íbúa í héruðunum Borno og Yobe sem lengi voru óaðgengileg hjálparstarfsfólki.