PCC Bakki Silicon hf. hefur ákveðið að reisa kísilver á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík til framleiðslu á kísilmálmi og er áætluð árleg framleiðslugeta versins 32.000 tonn í fyrri áfanga en fullbyggð er áætluð afkastageta 66.000 tonn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu en þar segir að öllum fyrirvörum vegna áforma um uppbyggingu versins á Bakka hafi nú verið aflétt. Aflþörf versins sé 53 MW í fyrri áfanga og komi hún að langmestu leyti frá Landsvirkjunar að Þeistareykjum.
Byggingarkostnaður kísilversins er talinn verða um 300 milljónir Bandaríkjadala eða nálægt fjörutíu milljörðum íslenskra króna. Áætlað er að allt að 400 manns starfi við uppbygginguna og að við fyrri áfanga versins muni skapast um 120 framtíðarstörf, auk afleiddra starfa. Áætlanir gera ráð fyrir að framleiðsla geti hafist í árslok 2017.
„Auk byggingar kísilversins verður samhliða ráðist í hafnar- og vegaframkvæmdir sem, auk þess að þjónusta rekstur PCC BakkaSilicon hf., búa í haginn fyrir frekari iðnaðaruppbyggingu á Bakka. Því til viðbótar má nefna framkvæmdir Landsvirkjunar að Þeistareykjum og fyrirhugaða línulögn Landsnets hf. til Húsavíkur, en hvoru tveggja mun styrkja mjög innviði sveitarfélaganna á svæðinu og gefa kost á frekari atvinnuuppbyggingu á NA-horninu,“ segir í tilkynningunni.