40% fyrirtækja vilja fjölgja hjá sér

Rúmlega 40% lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi hyggjast fjölga starfsfólki á næstu árum. Langflest eða rúmlega helmingur hyggjast fjölga um 2-4 starfsmenn en fjórðungur um 5-9 starfsmenn.

Þetta sýnir ný könnun Litla Íslands sem var unnin fyrir Smáþing Samtaka atvinnulífsins sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í gærdag.

Tæplega helmingur lítilla og meðalstórra fyrirtækja (48%) hyggst ekki gera breytingar á starfmannafjölda næstu árin en rúmlega eitt af hverjum tíu (10%) hyggst fækka starfsfólki.

Þriðjungur hyggst fækka um 2-4 starfsmenn, fjórðungur um 5-9 og 22% hyggjast fækka um einn starfsmann. Bjartsýni um fjölgun starfa er meiri hjá minni fyrirtækjum en þeim stærri og stærri fyrirtæki hyggjast frekar fækka starffólki en þau minni.

 

Sjá nánar á vef SA