Einstök saga ástandsbarnsins Guðbergs Guðmundssonar sem ólst upp við hrottafengið einelti í Garði á Suðurnesjum upp úr seinna stríði verður sögð með berum orðum í Mannamáli á Hringbraut í kvöld.
Hann var ekki skírður fyrr en hálfs annars árs gamall, en þá hafði mamma hans gefið hann í hendur fósturforeldrum sem fluttu með strákinn suður í Garð þar sem afbrotaferillinn hófst með því að skrifa kremkex á reikning fóstra síns í kaupfélaginu í plássinu. Á unglingsárunum byrjaði hann að þreifa fyrir sér í dópsölu í Reykjavík sem skilaði honum að lokum til útlanda þar sem glæpaferilinn hófst fyrir alvöru, með smygli á spítti milli landa, bankaráni í Danmörku, vændisreksstri í Hollandi og þvílíkum ævintýrum um þvera og endilanga Ameríku að með ólikindum er að karlinn hafi ekki drepist þar mörgum sinnum.
Hann gisti fangaklefa í samtals 20 ár, í einum sjö þjóðlöndum, víða við ömurlegar aðstæður, svo sem í Kaliforníu þar sem fangaverðir sýndu tukhúsmeðlimunum fáheyrða lítilsvirðingu eins og Guðberg lýsir vel í þættinum.
Er hér aðeins fátt eitt nefnt, en að lokum gafst Guðberg upp fyrir sjálfum sér, liðlega fimmtugur maðurinn og læt það í hendur æðri máttarvalda hvort hann ætti að skilja við lífið eða byrja nýtt líf án kókaíns og annars óþverra sem fór með hann slíka rússibanareið um lífið að nánast óhuggulegt er að hlýða á frásögn hans í þessu óvenjulega samtali hans og Sigmundar Ernis.
Mannamál byrjar klukkan 20:30 í kvöld.