Fjórrar fiskbúðir á landinu, Fiskbúðin Hafberg, Fiskikóngurinn, Fiskbúðin Vegamót Nesvegi og Fiskbúðin Vík Reykjanesbæ neituðu þátttöku í nýjustu verðkönnun Verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands.
Könnun náði þar með til 25 fiskbúða í stað 29 - og kom í ljós mikill verðmunur milli þeirra. Í um 70% tilvika var verðmunurinn á hæsta og lægsta að lágmarki 50%. Kannað var verð á 33 algengum tegundum fiskafurða.
Lægsta verðið var oftast að finna hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi Hafnarfirði eða í 14 tilvikum af 33 og hjá Litlu Fiskbúðinni Háaleitisbraut í 9 tilvikum. Verslunin Kjöt og fiskur Bergstaðastræti var með hæsta verðið í 6 tilvikum af 33 og Melabúðin, Hafið fiskiprinsinn Hlíðarsmára og Gallerý fiskur Nethyl voru með hæsta verðið í 4 tilvikum. Aðeins Fiskbúð Sjávarfangs Ísafirði átti til allar tegundirnar sem skoðaðar voru í könnuninni en þar á eftir komu Litla fiskbúðin Háaleitisbraut og Gallerý fiskur sem áttu til 30 tegundir. Fæstar tegundirnar sem skoðaðar voru, voru til hjá Fiskbúðinni Sjávarhöllin Hólagarði eða aðeins 9 tegundir af 33 og Samkaup-Úrval Hafnarfirði átti 12 tegundir.
Munur á hæsta og lægsta verði í könnuninni var frá 24% upp í 153%. Mestur verðmunur í könnuninni var á súrum hval sem var dýrastur á 3.763 kr./kg. hjá Fiskbúð Sjávarfangs, en ódýrastur á 1.490 kr./kg. hjá Litlu fiskbúðinni Háaleitisbraut en það er 2.273 kr. verðmunur eða 153%.
Minnstur verðmunur var á roðflettu og beinlausu ýsuflaki sem var ódýrast á 1.690 kr./kg. hjá Litlu fiskbúðinni Miðvangi en dýrast á 2.090 kr./kg. hjá Hagkaupum Kringlunni og Kjöt og fisk, en það er 400 kr. verðmunur eða 24%.