4% ferða í reykjavík með strætó

Reykvíkingar breyta ekki mikið ferðamáta sínum frá einni könnun til annarrar eins og sú nýjasta, sem gerð var síðasta haust, staðfestir, en niðurstöður hennar liggja nú fyrir.

Áhugavert er þó að sjá að samkvæmt könnuninni jókst hlutdeild hjólreiða úr 4% í 6% frá samskonar könnun 2014. Það jafngildir því að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi farið yfir 50 þúsund ferðir á reiðhjóli á venjulegum degi í október 2017.

Annars eru borgarb+uar heldur íhaldssamir í ferðamátavali sínu. Í Reykjavík voru 73% allra ferða farnar á einkabíl samkvæmt könnuninni og 4% ferða voru farnar með strætisvögnum. Hlutdeild hjólreiða í ferðum Reykvíkinga fer hækkandi var 7%, hækkaði úr 6% árið 2014 og 5% árið 2011. Íbúar fóru um 16% ferða sinna gangandi sem er sama hlutfall og árið 2011 en það var 18% árið 2014. Nefna má að 12% hjóla allt árið um kring, 46% hjóla hluta úr ári en 42% hjóla aldrei.

Eins og fyrri kannanir sýna er umtalsverður munur á ferðamátavali eftir hverfum borgarinnar. Íbúar í Vesturbæ og Hlíðum fóru 10% ferða sinna hjólandi og 20-24% ferða sinna gangandi. Hlutdeild einkabíla í ferðum íbúa miðborgar, Hlíða og Vesturbæjar er samkvæmt könnuninni á bilinu 57% til 65%. Í öðrum hverfum borgarinnar er hlutdeild einkabíla meiri