4 atkvæðum munaði á fylkingum

Íbúar Ölfuss höfnuðu viðræðum um samneingu við önnur sveitarfélög í grenndinni með naumum mun í rafrænni kosningu sem fram fór síðustu 10 sólarhringa. 304 voru hlynntir viðræðum um sameiningu við önnur sveitarfélög, en 308 andvígir viðræðum. 5 skiluðu auðu.1432 voru á kjörskrá, 16 ára og eldri.  617 greiddu atkvæði eða rúm 43%. Ef ræða ætti við önnur sveitarfélög vildu 286 ræða við Hveragerði, en 214 við Grindavík.


Tæknileg framkvæmd rafrænu kosningarinnar og talningar þar á eftir tókst vel að sögn heimamanna. Hægt var að kjósa í 99,6% af þeim tíma, en tölvubilun orsakaði stutt stopp. Þá olli bilun hjá samstarfsaðila því að hluta úr degi gat fólk ekki fengið senda nýja Íslykla í heimabanka.


Heimamenn segja að með þessum rafrænu íbúakosningum í Ölfusi hafi verið stigið mikilvægt skref í íbúalýðræði, þar sem hugur íbúa sé kannaður með auðveldum og öruggum rafrænum hætti.