Hátt í 20.000. Íslendingar hafa á skömmum tíma horft sér til skemmtunar á 4ra ára gamlan dreng sem þykir hafa náð miklu forskoti í keppninni um fyndnasta karakterinn fyrir öskudaginn á miðvikudag. Og það án þess að fara í búning! Hann bara hleypir í brýrnar og minnir óneitanlega ansi hressilega á Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Um ræðir húmoristann unga, Andra Má Guðjónsson. Faðir hans, Guðjón Kjartansson, segist hafa fengið leyfi hjá stráksa til að birta myndbandið.
Hringbraut fékk leyfi hjá Guðjóni til að birta myndbandið sem sjá má hér.
Nútíminn kveikti fyrstur fjölmiðla á skemmtigildinu.
Kannski eykur það enn vinsældir myndbandsins að fyrir nokkrum dögum sagði einn af þekktustu læknum þjóðarinnar að ástkær forsætisráðherra vor minnti stundum svolítið á tveggja ára strák!